Í dag kl. 13:00 er þátturinn Tíu Dropar á FM Trölla í beinni útsendingu frá Kanaríeyjum og Póllandi, von er á gestaspjalli frá Noregi.

Það eru “Tröllahjónin” Kristín Magnea Sigurjónsdóttir og Gunnar Smári Helgason sem stjórna þættinum.

Leikin verður ný íslensk tónlist sem var að koma út.

Þátturinn verður ekki hefðbundinn að þessu sinni, þar sem Kristín er stödd í Póllandi og Gunnar Smári í helli þeirra hjóna á Gran Canaria.

Fylgist með þættinum Tíu Dropar á FM Trölla á sunnudögum kl. 13:00 – 15:00.
FM Trölli næst á FM 103.7 í Eyjafirði, á Tröllaskaga, í Skagafirði, á Hvammstanga og nágrenni og auðvitað um allan heim hér á vefnum trolli.is.

Á vefsíðu FM Trölla er hægt að hlusta á upptökur af öllum þáttum sem eru á dagskrá stöðvarinnar um þessar mundir.

Hægt er að hlusta á þáttinn út um allan heim með því að smella á hlusta á síðunni eða hér: Hlusta

Minnum sjómenn á hafi úti og aðra með takmörkuð netsambönd á skip.trolli.is