Í dag verður þátturinn Tíu Dropar í beinni útsendingu frá Gran Canaria kl. 13 – 15.

Stjórnendur þáttarins eru að vanda “Tröllahjónin” Gunnar Smári og Kristín Sigurjónsdóttir.

Þau fjalla um lífið og tilveruna, helstu fréttir síðustu viku á trolli.is og spila lög úr öllum áttum.

Í dag verða leikin þrjú nýútkomin íslensk lög, og uppskrift vikunnar verður á sínum stað eins og venjulega.

Fylgist með þættinum Tíu Dropar á FM Trölla á sunnudögum kl. 13.
FM Trölli næst á FM 103.7 á Tröllaskaga, í Skagafirði, á Hvammstanga og nágrenni og auðvitað um allan heim hér á vefnum trolli.is.

Á síðu FM Trölla er hægt að hlusta á upptökur af öllum þáttum sem eru á dagskrá stöðvarinnar um þessar mundir.

Hægt er að hlusta á þáttinn út um allan heim með því að smella á hlusta á síðunni eða hér: Hlusta

Minnum sjómenn á hafi úti og aðra með takmörkuð netsambönd á skip.trolli.is