Nýliðun í Slökkviliði Fjallabyggðar hefst á næstu dögum. Fjórtán umsóknir bárust og er unnið úr umsóknum.

Tvær konur eru meðal umsækjenda.

 Slökkviliðsstjóri lagði fyrir bæjarstjóra og bæjarráð nýliðunaráætlun og var samþykkt að sex nýliðar yrðu ráðnir á þessu ári.

Nýliðar sem valdir verða hefja fornám, þjálfun og æfingu strax í júní. En í haust er stefnt að það því að hefja nám við Brunamálaskóla Húsnæðis- og Mannvirkjastofnunar.

Hlutastarfandi slökkviliðsmenn á útkallslista Slökkviliðs Fjallabyggðar verða þá orðnir þrjátíu og fjórir auk slökkviliðsstjóra og varaslökkviliðsstjóra.

6 nýliðar ráðnir í slökkvilið Fjallabyggðar

Mynd/Fjallabyggð