Lögð fram á 285. fundi skipulags- og umhverfisnefndar Fjallabyggðar fyrirspurn Birgittu Guðrúnar Ásgrímsdóttur og Alexanders Schepsky varðandi Námuveg 2 í Ólafsfirði.

Húsið stendur í dag á athafnasvæði (AT), en spyrjendur vilja kanna möguleika á að reka gistiheimili og veitingarekstur í hluta hússins sem kallar á breytta skilgreiningu svæðis í verslun og þjónustu (VÞ).

Nefndin tók jákvætt í erindið og felur tæknideild að finna heppilega útfærslu á breytingu á aðalskipulagi.

Birgitta Ásgrímsdóttir ásamt Alexander Schepsky og Guðdísi Jörgensdóttur mættu á 745. fund bæjarráðs Fjallabyggðar og kynntu uppbygginaráform sín í tengslum við ferðaþjónustustarfsemi við höfnina í Ólafsfirði.

Bæjarráð fagnar áhuga hópsins og áformum þeirra um uppbyggingu við höfnina í Ólafsfirði. Telur bæjarráð að hugmyndin falli vel að framtíðaráformum sveitarfélagsins um fjölbreyttari nýtingu hafnarinnar í Ólafsfirði.

Bæjarráð lýsir sig reiðubúið til þess að breyta aðalskipulagi til þess að greiða götu verkefnisins.

Hafnarsvæðið í Ólafsfirði

Myndir/ fastinn.is