Sú hefð hefur skapast undanfarin ár að FM Trölli flytur jólakveðjur frá fyrirtækjum, stofnunum og einstaklingum um jól og áramót.

Kveðjurnar verða að berast á netfangið trolli@trolli.is eigi síðar en 18. desember.

Kveðjurnar eru lesnar upp tvisvar á klukkustund frá og með 21. desember á um það bil 10-15 mín. yfir og 15-20 mín. fyrir heila tímann. Koma þá nokkrar kveðjur í senn, allar kveðjur heyrast daglega á mismunandi tímum.

Allar kveðjurnar verða svo lesnar upp í heild sinni, með stöku jólalagi inn á milli, um kl. 13 á aðfangadag og nýársdag, og einnig á jóladag um kl. 11.

FM Trölli næst um allan heim hér á vefnum trolli.is og á FM 103.7 á á Siglufirði, í Ólafsfirði, í Eyjafirði, á Hvammstanga og nágrenni.

Einnig má hlusta á netinu, hér á trolli.is, í Spilaranum t.d. í Apple TV og ýmsum nýrri sjónvarpstækjum, á vefsíðunni radio.garden og á tunein.com

Minnum sjómenn á hafi úti og aðra með takmörkuð netsambönd á skip.trolli.is