Í dag, fimmtudaginn, 23. september, kl. 17:15 verður haldinn kynningarfundur fyrir áhugasama um Gamla skóla.

Fundurinn verður í Upsa, fundarsal á 3. hæð Ráðhúss Dalvíkur. Þar mun vinnuhópur um Gamla skóla fara yfir stöðuna á verkefninu um endurbyggingu Gamla skóla, flutning byggðasafnsins, uppsetningu fuglasýningarinnar og anddyri Friðlands Svarfdæla.

Enn vantar hugmyndir um hlutverk eða nýtingu á elsta hluta húsnæðisins og eru íbúar hvattir til að koma á fundinn til skrafs og ráðagerða.

Allir áhugasamir velkomnir.

Vinnuhópur um Gamla skóla:

Katrín Sigurjónsdóttir
Kristján E. Hjartarson
Rúna Kristín Sigurðardóttir