Matvælastofnun hefur undanfarin tvö ár ásamt hagsmunaaðilum og sendiráði Íslands í Indlandi unnið að öflun leyfis til útflutnings á lambakjöti frá Íslandi til Indlands. Samningaviðræðum er lokið og er útflutningurinn orðinn að veruleika. Þetta er annar stóri erlendi markaðurinn sem opnast fyrir íslenskt lambakjöt, en í haust var undirritaður samningur um hollustuhætti og matvælaöryggi vegna útflutnings á lambakjöti til Kína.

Indversk yfirvöld veittu um mitt sumar tímabundið leyfi til innflutnings á tilgreindu magni af lambakjöti. Endanlega var gengið frá heilbrigðisvottorði snemma í september, fyrsta sendingin fór til Indlands nú í byrjun október og fleiri sendingar eru fyrirhugaðar á næstu vikum. Gerðar eru ýmsar sérkröfur og sett skilyrði varðandi útflutning á lambakjöti til Indlands.

Mikilvægustu sérkröfur Indlands varða riðu. Einungis má flytja til Indlands kjöt af lömbum frá svæðum þar sem aldrei hefur greinst riða og kjötinu á að halda aðskildu frá öðru kjöti í vinnslu og í geymslum.

Mikil áhersla er á að rekjanleiki sláturlamba og afurða þeirra sé öruggur.

Samningurinn gildir fyrir ákveðinn innflytjanda í Indlandi og frá einu sláturhúsi og tilgreindri vinnslustöð hér á landi. Um er að ræða tilraun til markaðssetningar á íslensku lambakjöti á Indlandi. Ef vel tekst til standa vonir til þess að fleiri framleiðendur á Íslandi geti notið góðs af.

Leyfi sem gefið var í þetta sinn er til sex mánaða, fyrir 5 tonn þar sem hluti af kjötinu er í heilum og hálfum skrokkum og hluti af kjötinu er stykkjaður og úrbeinaður.

 

Sjá einnig vef Matvælastofnunar