Kjörbúðin Siglufirði leitar að jákvæðum, ábyrgðarfullum og kraftmiklum verslunarstjóra í fullt starf sem hefur gaman af mannlegum samskiptum.

Umsóknarfrestur: 09.02.2019

Starfssvið:

  • Ábyrgð á rekstri verslunar.
  • Samskipti við viðskiptavini og birgja.
  • Umsjón með ráðningu starfsmanna og almennri starfsmannastjórnun í verslun.
  • Ábyrgð á vöruframsetningu og áfyllingum.
  • Ábyrgð á birgðahaldi í verslun.
  • Önnur tilfallandi störf.

Hæfniskröfur:

  • Marktæk reynsla af stjórnun og starfsmannahaldi hjá verslunar- og/eða þjónustufyrirtækjum.
  • Styrkleiki í mannlegum samskiptum, sjálfstæð vinnubrögð, skipulagshæfni, reglusemi og árvekni í hvívetna.

Allar nánari upplýsingar er hægt að fá hjá Heiðari Róberti rekstrarstjóra Kjörbúða – heidar@samkaup.is