Búið er að opna vegi á Víðidalstunguheiði fram að Dauðsmannskvísl við Fellaskála.

Athugið að vegir þar fyrir framan eru þó enn lokaðir vegna aurbleytu og munu opnanir þar verða auglýstar síðar. 

Húnaþing vestra á og rekur fimm gangnamannaskála á Víðidalstunguheiði sem eru leigðir út til gistingar og sér Júlíus Guðni Antonsson um bókanir og þjónustu við þá.