Kristín og Gunnar Smári

Þátturinn Tíu Dropar verður á dagskrá FM Trölla í dag kl 13.00 – 15.00

Það eru „Tröllahjónin“ Kristín Sigurjóns og Gunnar Smári sem stjórna þættinum.

Í þættinum í dag getur heppinn hlustandi nælt sér í nýútkomna ljósmyndabók frá Síldarminjasafni Íslands.

Bókin, Siglufjörður. Ljósmyndir / Photographs 1872-2018, er gefin út í tilefni 100 ára kaupstaðarafmælis og 200 ára verslunarafmælis Siglufjarðar – og er framlag safnsins til samfélagsins.

Sjá frétt frá útgáfuteiti ljósmyndabókarinnar: Hér

Hlustendum er einnig velkomið að hringja inn í þáttinn til að spjalla um nánast hvað sem er. Síminn er 5800.580

Fylgist með þættinum Tíu Dropar á FM Trölla í dag kl. 13. FM Trölli næst á FM 103.7 á Tröllaskaga, 102.5 á Hvammstanga og nágrenni og auðvitað um allan heim á vefnum trolli.is


Hægt er að hlusta á þáttinn með því að smella á hlusta efst á síðunni eða hér: Hlusta