Alls voru 59.105 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. júlí sl. og fjölgaði þeim um 4.126 frá 1. desember 2021 eða um 7,5%.   

Úkraínskum ríkisborgurum hefur fjölgað um 490% frá 1. desember sl. og voru þann 1. júlí sl. 1.410 úkraínskir ríkisborgarar skráðir í þjóðskrá. 
Sömuleiðis hefur verið umtalsverð fjölgun ríkisborgara frá Venesúela eða um 57% og eru nú 696 einstaklingar með venesúelskt ríkisfang búsettir hér á landi.  

Pólskum ríkisborgurum fjölgaði á ofangreindu tímabili um 568 einstaklinga og um síðustu mánaðarmót rufu þau 22 þúsund manna múrinn og voru 22.020 talsins eða 5,8% landsmanna og rúmenskum ríkisborgurum hefur fjölgað um 407 eða um 14,8%. 

Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. desember 2019-2021 og 1. júlí sl. 

Þessar tölur eru byggðar á skráningu þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi eftir ríkisfangi. 

Mynd/pixabay