Á mánudaginn fengu nemendur 5. bekkjar í Grunnskóla Fjallabyggðar að fræðast um Gústa guðsmann í Síldaminjasafni Íslands.

Sigurður Ægisson sóknarprestur kom í heimsókn og sagði þeim frá ævi Gústa en hann hefur skrifað ítarlega um ævi hans í bók sinni Gústi – alþýðuhetjan, fiskimaðurinn og kristniboðinn (2019).

Ágúst Gíslason fæddist í Dýrafirði á Vestfjörðum árið 1897 og dó 1985 á Siglufirði – en þar hafði hann búið í hartnær sextíu ár. Á ungdómsárum sínum sigldi hann um öll heimsins höf og kynntist fjarlægum þjóðum og misjöfnum kjörum þeirra. Guðstrúin, sem amma hans innrætti honum ungum, efldist honum í hjarta á ferðum hans og leiddi hann til einveru og meinlætalífs í þeim helga tilgangi að gefa og hjálpa þeim sem hann taldi standa höllum fæti í lífinu og höfðu ekki kynnst Guði og syni hans Jesúm Kristi.

Krakkarnir fengu meðal annars að fræðast um löndin sem Gústi heimsótti á ferðum sínum, hlusta á upptöku af honum syngja, skoða gamla miða sem hann skrifaði á ritningar úr Biblíunni og deildi með samferðarfólki sínu og að lokum skoðuðu þau gamla bátinn hans, Sigurvin SI-16, sem er til sýnis í Bátahúsi Síldarminjasafnsins.

Myndir og heimild/Síldarminjasafnið