Matvælastofnun fylgist með niðurstöðum efnamælinga Jarðvísindastofnunar og Veðurstofunnar í úrkomu og stöðuvötnum í nágrenni gosstöðvanna á Reykjanesi og metur á grundvelli þeirra hvort grípa þurfi til ráðstafana vegna nýtingar beitarhólfa til að tryggja heilsu og velferð dýra. Hvað loftmengun varðar er dýraeigendum bent á að hún hefur sambærileg áhrif á dýr og fólk. Jafnframt er fólk minnt á að ekki er ráðlegt að fara með dýr að gosstöðvunum vegna ýmis konar hættu.

Matvælastofnun mun meta reglulega hvort ástæða sé til að takmarka nýtingu beitarhólfa á Reykjanesi þegar þar að kemur og mun tilkynna dýraeigendum ef talin verður þörf á sérstökum ráðstöfunum. Eigendur gætu þurft að flytja búfé sitt á brott ef efna- eða reyk mengun eykst mikið. Einfalt ætti að vera fyrir hrossaeigendur að finna hagabeit á öðrum stöðum en komi til þess að flytja þurfi sauðfé af svæðinu þarf að hafa í huga að vegna sjúkdómavarna má ekki flytja það í önnur varnarhólf nema með aðkomu Matvælastofnunar.

Svæðið tilheyrir Landnámshólfi, sem skiptist í sýkt og ósýkt svæði hvað varðar sjúkdómastöðu, aðalega riðu. Innan sýkta svæðisins eru sveitarfélögin Ölfus, Hveragerði og Grímsnes- og Grafningshreppur en í ósýkta hlutanum eru sveitarfélögin á Suðurnesjum og á höfuðborgarsvæðinu. Fé má ekki flytja frá sýktu svæði til ósýkts. Ef nauðsynlegt reynist að flytja fé af svæðinu vegna mengunar, þurfa fjáreigendur á Reykjanesi að leitast við að finna heppilegan stað í ósýkta hluta hólfsins, til að flytja það á. Sé enginn kostur innan ósýkts svæðis mögulegur, skal hafa samband við Matvælastofnun sem mun þá meta þau úrræði sem völ er á. Annar kostur er að gefa fénu ómengað hey en það getur ekki talist góð lausn nema í stuttan tíma.

Loftmengun hefur sambærileg áhrif á dýr og fólk.

Það er mikilvægt að dýraeigendur verji dýrin sín fyrir loftmengun svo sem kostur er eða haldi álagi í lágmarki að öðrum kosti. Aðalhættan er núna reykmengun vegna eldanna í mosanum og fínar sótagnir sem erta lungu. Forða skal dýrum leggi reykinn yfir beitilönd eða gripahús. Eigendur alifugla- og svínabúa grípi til ráðstafana í samráði við Matvælastofnun.

Að lokum er dýraeigendum eindregið ráðið frá að fara með dýrin sín á gosstöðvarnar. Þar er ýmislegt að varast svo sem: bruna- og hrunhættu frá hrauninu, loftmengun, skaðleg efni sem dýrin geta fengið í sig úr vatni, og saltsýru og önnur efni á jörðinni sem geta sært þófa á hundum og þeir fengið í sig við að sleikja feld og þófa.

Mynd/trolli.is