Allir vilja geta geta komist auðveldlega um gangstéttir og göngustíga Dalvíkurbyggðar.
Sumstaðar vex trjágróður á lóðum það mikið út fyrir lóðarmörk að vandræði og jafnvel hætta stafar af. Þetta á við um bæði umferð gangandi, hjólandi og akandi vegfarenda. Einnig eru dæmi um að trjágróður skyggi á umferðarmerki, götuheiti og jafnvel lýsingu.

Þá er starf skóla byggðalagsins farið á fullt og því fylgir aukin umferð vegfarenda. Það skiptir gríðarlega miklu máli að allir séu sjáanlegir í umferðinni og geti óhindrað gengið á gangstéttum, þá ekki síst yngstu skólabörnin sem eru að stíga sín fyrstu skref í umferðinni.

Vaxi gróður út fyrir lóðarmörk þarf lágmarkshæð yfir gangstétt eða gangstíg vera 2,8 metra og 4,5 metrar yfir akbraut.

Sviðsstjóri og starfsmenn umhverfis- og tæknisviðs vilja hvetja íbúa Dalvíkurbyggðar til að hafa þessi mál í lagi og snyrta trjágróður á lóðarmörkum eftir því sem þörf er á. Þá skal snyrtingu gróðurs vera lokið fyrir 20. september en eftir þann tíma má búast við að gróður verði fjarlægður á kostnað lóðarhafa.

 

Mynd: Dalvíkurbyggð