Á fundi Fræðslu- og frístundanefndar Fjallabyggðar þann 23. mars 2026 var tekið fyrir erindi frá Siglingasambandi Íslands þar sem sveitarfélög landsins eru hvött til að leggja aukna áherslu á vernd strandlengju og bæta aðgengi almennings að sjónum.
Erindið byggir á ályktun frá 53. Siglingaþingi sambandsins sem haldið var 21. febrúar síðastliðinn. Þar er lögð áhersla á að strandlengjan sé ein dýrmætasta náttúruauðlind sveitarfélaga og gegni lykilhlutverki þegar kemur að lýðheilsu, útivist, ferðaþjónustu, náttúruvernd og lífsgæðum íbúa. Bent er á að aðgengi að sjó og strönd sé ekki sjálfgefið og kalli á markvissa stefnumótun, skipulag og vernd.
Í áskorun Siglingasambandsins er sveitarfélögum meðal annars ráðlagt að tryggja í skipulagi raunhæft og öruggt aðgengi almennings að strandlengju, gæta þess að uppbygging og mannvirkjagerð takmarki ekki slíkt aðgengi og að tryggja nýja aðstöðu fyrir starfsemi sem kann að raskast vegna framkvæmda. Þá er lögð áhersla á góða umhirðu strandlengju, þar með talið hreinsun, stígagerð, merkingar og aðstöðu fyrir almenning, auk þess sem mikilvægt sé að koma í veg fyrir að skólp renni út í fjörur.
Jafnframt er sveitarfélögum hvatt til að móta skýra stefnu um vernd strandlengjunnar sem sameiginlegrar auðlindar íbúa. Í erindinu er einnig vakin athygli á mikilvægi þess að styðja við íþróttafélög og aðra starfsemi sem nýtir sjó og strandlengju, svo sem siglingar, róður, kajak, brimbretti og sjósund.
Slík starfsemi er sögð hafa margvísleg jákvæð áhrif, þar á meðal að efla lýðheilsu, auka öryggi og þekkingu íbúa á náttúrunni, sérstaklega meðal barna og ungmenna, styrkja tengsl samfélagsins við sjóinn og bæta ímynd sveitarfélaga sem áfangastaða fyrir bæði íbúa og gesti.
Að lokum er sveitarstjórnum hvatt til að tryggja þessum félögum viðunandi aðstöðu, greiðan aðgang að sjó og möguleika til geymslu búnaðar, auk þess að gera ráð fyrir starfsemi þeirra í skipulagi.
Mynd: Fjallabyggd.is





