Eins og trolli.is greindi frá í vor, var Fræðafélag Siglufjarðar stofnað þann 28. apríl 2019.

Tilgangur félagsins er að fjalla um fræðileg málefni og málefni líðandi stundar sem snerta samfélagið í sinni smæstu og stærstu mynd. Lögð verður áhersla á að öll umfjöllun sé hlutlæg og hafin yfir ríkjandi stjórnmálaskoðanir.

Fyrsti viðburður félagsins verður fimmtudaginn 19. september og mun Þórarinn Ævarsson frv. framkvæmdastjóri. Ikea vera með erindi. Í vetur er gert ráð fyrir að þrír eða fjórir fyrirlesarar verði með erindi.

Stofnfélagar Fræðafélags Siglufjarðar eru þau Anita Elefsen, Brynja Ingunn Hafsteinsdóttir, Kristbjörg Edda Jóhannsdóttir, Sigríður Vigdís Vigfúsdóttir og Stefán Már Stefánsson.

Félagið er opið öllum einstaklingum og ekki eru innheimt félagsgjöld.  Þeir sem hafa áhuga á að ganga í félagið eða að fá nánari upplýsingar er bent á að hafa samband við Brynju með því að senda póst á netfangið brynjah66@gmail.com eða í síma 692-4697.