Golfhermir Golfklúbbs Siglufjarðar opnar formlega mánudaginn 14. desember.

Til að byrja með verður aðeins opið fyrir félagsmenn GKS að spila í herminum, vonast er til að eftir 12. janúar verði hægt að opna fyrir aðra..

Golfhermirinn er staðsettur í húsinu hjá Sverri Björnssyni ehf í Vesturtanga 1-5, gengið er inn að norðan.

Félagar í GKS eru forsvarsmönnum Sverris Björnssonar ehf þakklátir að hýsa golfherminn.

Kylfingar GKS geta bókað rástíma: Hér

Í dag laugardaginn 12. desember verður Jóhann Már Sigurbjörnsson á svæðinu til að leiðbeina félagsmönnum um notkun á herminum, frá kl.13:00 – 15:00.

Mynd/ Jóhann Már Sigurbjörnsson