Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra – SSNV leita að námsmanni sem hefur gaman af útivist.

Skilyrði er að námsmaðurinn sé á milli anna, þ.e. hafi stundað nám á vormisseri og sé skráður í nám á haustmisseri. Ráðningartími er tveir og hálfur mánuður á tímabilinu 1. júní – 15. september 2021.

Námsmaðurinn þarf að vera að lágmarki 20 ára á árinu og eiga lögheimili á Norðurlandi vestra.

Verkefni sumarstarfsmannsins munu snúa að átaksverkefni í tengslum við gönguleiðir á Norðurlandi vestra með þungamiðju í Húnaþingi vestra og A-Hún.

Um er ræða hnitsetningu og stikun göngu- hlaupa og hjólaleiða gerð leiðarlýsinga og skráning grunnupplýsinga um viðkomandi leiðir. Góður tækni-/snjalltækjaskilningur í bland við ánægju af útivist og áhuga á svæðinu eru því álitlegir kostir umsækjenda.

Jafnframt mun starfsmaðurinn koma að vinnu við verkefni er lýtur að skipulagi og uppsetningu upplýsingaskilta á Norðurlandi vestra.

Námsmaðurinn mun vinna með framkvæmdastjóra samtakanna og atvinnuráðgjafa á sviði ferðamála að framangreindum verkefnum. Megin starfsstöð getur verið á einhverri af þremur skrifstofum samtakanna á Sauðárkróki, Skagaströnd eða Hvammstanga.

Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi bílpróf.

Nánari upplýsingar veitir Unnur Valborg Hilmarsdóttir, framkvæmdastjóri SSNV, unnur@ssnv.is

Tekið er á móti umsóknum til og með 17. maí í gegnum umsóknarform hér: https://forms.gle/qc6df3s4N9od7hz37