Undankeppni Söngkeppni Samfés, NorðurOrg, var haldin með rafrænum hætti miðvikudagskvöldið 21. apríl sl.
Helena Reykjalín Jónsdóttir tók þátt fyrir hönd Neons og komst hún áfram með lagið Creep með hljómsveitinni Radiohead.

Hún mun því flytja lagið að nýju í úrslitum Söngkeppni Samfés sunnudaginn 9. maí í Bíóhöllinni Akranesi.

Mynd/ Grunnskóli Fjallabyggðar