Húnaþing vestra auglýsir eftir aðilum til að stunda vetrarveiðar á ref.

Áhugasamir skili inn umsóknum þar um á skrifstofu Húnaþings vestra.

Svæðin verða sex:

Vatnsnes, Vesturhóp, Miðfjörður, Víðidalur, Hrútafjörður austan og Hrútafjörður vestan og verður einn aðili ráðinn á hvert svæði.

Í umsókn skal koma fram hvar umsækjandi ætlar að staðsetja skothús og stunda vetrarveiðar á ref. Ef umsækjandi ætlar að stunda veiðarnar utan eigin landareignar skal skriflegt leyfi landeigenda fylgja umsókninni. Húnaþing vestra hyggst gera skriflega samninga við þá veiðimenn sem úthlutað verður leyfum til vetrarveiða á ref. Í þeim samningi mun m.a. koma fram að kr. 8.000- verða greiddar fyrir hvert unnið dýr, að hámarki 17 dýr á hverju svæði. Skilyrði leyfisveitingar er að umsækjandi hafi gilt skotvopnaleyfi og veiðikort útgefið af Umhverfisstofnun. Tekið er fram að einungis þeim er veitt verður leyfi til vetrarveiða á ref verður greitt fyrir unnin dýr.

Skriflegum og undirrituðum umsóknum um vetrarveiði á ref skal skila á skrifstofu Húnaþings vestra eigi síðar en 15. nóvember 2019.

Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, sveitarstjóri.

 

Mynd: Húnaþing vestra