Lýðheilsa og áhrifavaldar í Húnaþingi vestra.

Ungmennasamband Vestur-Húnvetninga (USVH) býður til fyrirlestrar
föstudaginn 28. febrúar kl. 18
í Íþróttamiðstöðinni á Hvammstanga.

Þar munu Þorsteinn V. Einarsson og Sólborg Guðbrandsdóttir halda fyrirlestur undir heitinu #karlmennskan og #fávitar sem þau hafa hlotið lof fyrir víða um land.

Sólborg ræðir um kynferðislega áreitni og ofbeldi sem fólk verður fyrir á samfélagsmiðlum og Þorsteinn um víðtækar hugmyndir um karlmennsku í samfélaginu og neikvæða pressu sem margir verða fyrir vegna þeirra.

Fyrirlesturinn er opinn öllum að kostnaðarlausu og er styrktur af UMFÍ, Rannís, Ungmennaráði og Húnaþingi-Vestra.

Aðsent.