Í lok 3. ársfjórðungs 2019 bjuggu 362.860 manns á Íslandi, 186.220 karlar og 176.640 konur. Landsmönnum fjölgaði um 2.470 á ársfjórðungnum. Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 232.070 manns og 130.790 utan þess.

Á 3. ársfjórðungi 2019 fæddust 1.250 börn, en 540 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 1.560 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 210 umfram aðflutta, en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 1.770 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu.

Danmörk var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 500 manns á 3. ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 880 íslenskir ríkisborgarar af samtals 1.150 . Af þeim 1.280 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, eða 370 manns.

Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (310), Noregi (140) og Svíþjóð (210), samtals 670 manns af 950. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara, en þaðan fluttust 790 til landsins af alls 3.050 erlendum innflytjendum. Litháen kom næst, en þaðan fluttust 250 erlendir ríkisborgarar til landsins. Í lok annars ársfjórðungs bjuggu 48.640 erlendir ríkisborgarar á Íslandi, eða 13,4% af heildarmannfjölda.

Mannfjöldi, fæðingar, andlát og búferlaflutningar á 3. ársfjórðungi 2019
Alls Karlar Konur
Mannfjöldinn í lok ársfjórðungsins 362.860 186.220 176.640
Mannfjöldinn í upphafi ársfjórðungsins 360.390 184.810 175.580
Breyting 2.470 1.420 1.060
Fæddir 1.250 650 600
Dánir 540 270 270
Aðfluttir umfram brottflutta 1.560 920 640
Aðfluttir 4.000 2.200 1.800
Brottfluttir 2.440 1.280 1.160
Allar tölur eru námundaðar að næsta tug ef mannfjöldinn er meiri en 50 en að næsta hálfa tug ef talan er lægri. Ekki er tryggt að tölur gangi upp í samtölur vegna námundunarinnar.

 

Mannfjöldinn er reiknaður eins og hann stendur samkvæmt þjóðskrá.

 

Heimild: Hagsstofa Íslands
Mynd: pixabay