Fjallabyggð auglýsir lausar til umsóknar 11 lóðir fyrir einbýlishús og lóðir fyrir eitt parhús.
Lóðirnar eru staðsettar í suðurbæ Siglufjarðar í grónu hverfi. Tilgangur með nýsamþykktu deiliskipulagi fyrir svæðið var að ná óbyggðum lóðum inn í skipulag með skilmálum fyrir nýbyggingar. Markmiðið er að halda í yfirbragð byggðarinnar þannig að nýbyggingar verði hluti af núverandi heild.
Þeir sem vilja byggja í Fjallabyggð greiða lágt lóðarúthlutunargjald ásamt byggingarleyfisgjaldi auk stofngjalda vatns- og fráveitu. Engin gatnagerðargjöld verða innheimt til loka árs 2024. Mikil náttúrufegurð er í Fjallabyggð sem er ört vaxandi bæjarfélag með rúmlega tvö þúsund íbúa og afþreyingarmöguleikar eru nánast ótæmandi.
Umsóknum skal skilað rafrænt í gegnum þjónustugátt Fjallabyggðar www.fjallabyggd.is og er umsóknarfrestur til og með 10. júní 2024.
Við úthlutun verður farið eftir reglum um úthlutun lóða í Fjallabyggð dags. 27. nóvember 2023.
Nánari upplýsingar gefur Ármann V. Sigurðsson deildarstjóri tæknideildar (armann@fjallabyggd.is) eða Íris Stefánsdóttir (iris@fjallabyggd.is) í síma 464-9100.
Lóðir til úthlutunar:
Heiti lóðar | Stærð lóðar | Húsagerð | Fjöldi hæða | hámarks bygg. magn |
Hávegur 61 | 919 fm | Einbýli | 2 hæðir | 250 fm |
Suðurgata 64 | 661 fm | Einbýli | 2 hæðir | 250 fm |
Suðurgata 67 | 725 fm | Einbýli | 2 hæðir | 250 fm |
Suðurgata 69 | 766 fm | Einbýli | 2 hæðir | 250 fm |
Suðurgata 73 | 825 fm | Einbýli | 2 hæðir | 250 fm |
Suðurgata 79-81 | 725 fm x2 | Parhús | 2 hæðir | 250 fm x2 |
Suðurgata 83 | 822 fm | Einbýli | 2 hæðir | 250 fm |
Suðurgata 85 | 822 fm | Einbýli | 2 hæðir | 250 fm |
Suðurgata 89 | 759 fm | Einbýli | 2 hæðir | 270 fm |
Laugarvegur 29 | 753 fm | Einbýli | 2 hæðir | 270 fm |
Laugarvegur 40 | 893 fm | Einbýli | 2 hæðir | 250 fm |
Hafnargata 30 | 582 fm | Einbýli | 2 hæðir | 240 fm |
Sjá nánar: HÉR