Ákveðið var á 75. fundi Fræðslu- og frístundanefndar Fjallabyggðar að lengja opnunartíma sundlauga á þriðjudögum og fimmtudögum til kl. 20:30 á Siglufirði og til kl. 20:00 í Ólafsfirði. Tillöguna lagði fram Haukur Sigurðsson, forstöðumaður íþróttamiðstöðva Fjallabyggðar.

Breytingin tekur gildi þriðjudaginn 15. október nk.