Menntaskólinn á Tröllaskaga er tilnefndur til Íslensku menntaverðlaunanna fyrir að fara nýjar leiðir í skipulagi náms og kennslu með áherslu á valdeflingu nemenda, frumkvæði, sköpun og áræði. Skólinn er tilnefndur í flokknum framúrskarandi skólastarf ásamt Dalskóla, Leikskólanum Rauðhóli, Pólska skólanum og Tónskóla Sigursveins.

Verðlaun verða einnig veitt í flokkunum framúrskarandi kennsla og framúrskarandi þróunarverkefni. Þá verða sérstök hvatningarverðlaun kynnt við afhendingu Íslensku menntaverðlaunanna sem áformað er að verði á Bessastöðum föstudaginn 13. nóvember næstkomandi.

Mark­mið Íslensku menntaverðlaun­anna er að vekja at­hygli á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frí­stund­a­starfi og auka veg umbóta í menntun.

Það eru embætti forseta Íslands, mennta- og menningarmálaráðuneytið, samgöngu- og sveitar­stjórnar­ráðuneytið, Félag um menntarannsóknir, Grunnur – félag fræðslustjóra og stjórnenda skólaskrifstofa, Kennaradeild Háskólans á Akureyri, Kennarasamband Íslands, Listaháskóli Íslands (listkennsludeild og tónlistardeild), Menntamálastofnun, Mennta­vísindasvið Háskóla Íslands, Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samtök áhugafólks um skólaþróun og Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar sem standa að Íslensku menntaverðlaununum.