Nú þegar skólar eru komnir á fullt skrið, velta margir foreldrar eðlilega fyrir sér hvernig staðan sé á skólaakstri.

Á vefsíðu sveitarfélagsins Skagafjarðar kemur fram m.a.:

Eins og komið hefur fram ákvað fræðslunefnd Skagafjarðar að bjóða aksturinn í tengslum við Árskóla út í sumar sem leið. Tvö tilboð bárust í aksturinn. Nefndin ákvað að hafna báðum tilboðum og bjóða aksturinn út að nýju með breyttu sniði.

Útboð á skólaakstri stendur yfir hjá sveitarfélaginu og er áætlað að opna tilboð í næstu viku. Vonast er til að hægt verði að taka ákvörðun um skólaaksturinn á Sauðárkróki fljótlega í kjölfarið.

Mikilvægt er að brýna fyrir ökumönnum að aka gætilega í nágrenni við skóla. Mörg börn eru á ferli, bæði fótgangandi og á hjólum ýmiskonar.

Heimild: skagafjordur.is