Nýr sóknarprestur sr. Stefanía Guðlaug Steinsdóttir hefur verið ráðin tímabundið sem sóknarprestur í Ólafsfjarðarprestakalli.
Sr. Guðrún Eggerts Þórudóttir sem verið hefur prestur Ólafsfirðinga síðastliðin tvö hefur hafið störf í Vídalínskirkju.
Prestur Ólafsfirðinga á förum
Sr. Stefanía Guðlaug mun starfa næsta árið í Ólafsfjarðarprestakalli samkvæmt skipun biskups og eftir það mun staðan verða auglýst að nýju.
Ólafsfjarðarkirkja var vígð 4. sunnudag í aðventu árið 1915.
Ólafsfjarðarkirkja var byggð eftir teikningu Rögnvaldar Ólafssonar árið 1915 úr steinsteypu og rúmaði 120 manns eða um tvo þriðju hluta íbúa staðarins á þeim tíma. Langt er því um liðið síðan kirkjan varð allt of lítil til flestra athafna, enda íbúar nú tífalt fleiri, og hefur aðstöðuleysi háð starfsemi allri. Hugmyndir um að byggja nýja kirkju hafa verið uppi um árabil en árið 1996 var hafist handa við stækkun gömlu kirkjunnar og byggingu safnaðarheimilis við hana.
Fanney Hauksdóttir arkitekt og Arkitekta- og Verkfræðistofa Hauks, Akureyri, tók að sér að hanna safnaðarheimili í viðbyggingu við kirkjuna og breytingar á henni sjálfri. Rafhönnun annaðist Raftákn ehf á Akureyri. Formaður byggingarnefndar var Óskar Þór Sigurbjörnsson. Framkvæmdir hófust sumarið 1996 með því að safnaðarheimili var steypt upp og gert fokhelt fyrir áramót þess árs og fyrsta áfanga verks þar með lokið.
Annar áfangi verksins hófst síðsumars 1997 og lauk honum með endur-vígslu kirkjunnar 13. sept. 1998. Verkið fólst í lengingu kirkjuskips um 5,3 metra sem felur í sér 40 fermetra stækkun á gólffleti, viðgerð og frágangi kirkjuskips, þ.á.m. endurnýjun þaks, glugga, sönglofts, gólfefna, bókstaf-lega allra innréttinga, og tengingu við nú rúmlega fokhelt safnaðarheimili. Kirkjan er nánast nýbygging því eftir stóðu aðeins steinhluti turns og veggendar kirkjuskips til hálfs. Þekja á turni var endurnýjuð og lögð zinki og öflugu loftræstikerfi komið fyrir í rjáfri.
Ólafsfjarðarkirkja er háð húsfriðunarlögum. Kostað hefur verið kapps um að færa sem flest til upprunalegs horfs í anda Rögnvaldar Ólafssonar arkitekts.
Aðalverktaki kirkjubyggingarinnar eins og við 1. áfanga er Tréver h.f. og Vigfús Skíðdal Gunnlaugsson byggingarmeistari. Þá hefur Klemens Jónsson byggingarmeistari unnið ýmsa vandasama verkþætti endur-byggingarinnar m.a. endursmíði prédikunarstóls kirkjunnar sem Þorsteinn Esper smíðaði upphaflega.