Föstudaginn langa 7. apríl kl. 14.00 hefst árlega listahátíðin Leysingar í Alþýðuhúsinu á Siglufirði. Hátíðin stendur í þrjá daga og er boðið upp á sýningu í Kompunni, þrjá gjörninga, upplestur ljóða og tvenna tónleika. 

Dagskrá 2023

Þátttakendur eru:
Anna Líndal
Egill Logi Jónasson
Kristína Anna Valtýsdóttir
Karólína Rós Ólafsdóttir
Haust
Sigurður Þórir Ámundason
Venus Volcanism

Föstudaginn 7. apríl 

kl. 14.00 – 17.00 Anna Líndal opnar sýningu í Kompunni
kl. 15.00 – 15.30 Haust flytur gjörning
Kl. 15.40 – 16.10 Sigurður Þórir Ámundason flytur gjörning
Kl. 16.30 – 17.00  Egill Logi Jónasson flytur gjörning

Laugardaginn 8. apríl

kl. 14.00 – 17.00 Anna Líndal sýnir í Kompunni
kl. 16.00 – 16.30 Karólína Rós Ólafsdóttir upplestur eigin ljóða
kl. 20.00 – 21.00 Kristina Anna Valtýsdóttir og hljómsveit, tónleikar

Sunnudagurinn 9. apríl

kl. 14.00 – 17.00 Anna Líndal sýnir í Kompunni
kl. 15.00 – 16.00 Venus Volcanism, tónleikar.

Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Nánari upplýsingar hjá Aðalheiði í síma 865-5091.