Söngkonan RAVEN var að senda frá sér nýtt lag.

Lagið heitir Not the Same og kom út á öllum helstu streymisveitum 2. október.

Lagið verður leikið í þættinum Tíu Dropar, á FM Trölla í dag milli kl. 13 og 15.

Hrafnhildur Magnea Ingólfsdóttir er ungur lagahöfundur og tónlistarkona sem hefur áður verið í hljómsveitinni White Signal og fer núna fyrir bandinu Náttsól ásamt því að gefa út sitt sólóefni undir nafninu RAVEN.

Hún hefur áður gert það gott með lögunum Half of me, Toxic og Hjartað tók kipp sem naut mikilla vinsælda á öldum ljósvakans.

Hrafnhildur syngur yfirleitt á ensku og stefnir á útgáfu á EP plötu á næstu mánuðum.