Mennta- og barnamálaráðuneytið veitir árlega einum íslenskum nemanda styrk til náms við Alþjóðlega menntaskólann (e. Red Cross Nordic United World College) í Flekke í Noregi.

Skólinn er hluti af alþjóðlegu skólasamtökunum United World Colleges (UWC) sem reka 18 skóla í 15 löndum. UWC er í fararbroddi alþjóðlegrar menntunar til stúdentsprófs, með það að markmiði að menntun ungmenna með ólíkan menningarbakgrunn auki skilning og samstarf milli þjóða og menningarheima.

Nám við skólann í Noregi tekur tvö ár og lýkur með viðurkenndu alþjóðlegu stúdentsprófi (e. International Baccalaureat Diploma – IB). Kennsla fer fram á ensku.

Í skólastarfinu er lögð sérstök áhersla á umhverfis-, samfélags- og mannréttindamál og önnur mikilvæg viðfangsefni samtímans. Skólinn á í samstarfi við Rauða krossinn og Norðurlöndin, sem eiga aðild að stofnun hans. Auglýst er eftir umsækjendum um skólavist á hverju ári. Þeir skulu hafa lokið sem svarar einu ári í framhaldsskóla, hafa gott vald á ensku og vera á aldrinum 16-18 ára. Styrkþegi þarf sjálfur að greiða fargjöld sín.

Fylla þarf út tvö umsóknareyðublöð, eitt á íslensku og annað á ensku og einnig skila inn afritum af prófskírteinum og meðmælum.

Umsóknarfrestur er til og með fimmtudeginum 24. mars 2022.