Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að veita veitingastöðum undanþágu frá fjöldatakmörkun nýrrar reglugerðar um takmarkanir á samkomum í dag, þann 23. desember. Veitingastöðum verður því heimilt að taka á móti 50 gestum í rými þann 23. desember í stað 20 líkt og kveðið er á um í reglugerð.

Að fjöldatakmörkunum slepptum verður skylt að viðhafa allar þær sóttvarnaráðstafanir sem kveðið er á um í reglugerðinni. Veitingastöðum ber því að loka á þeim tíma sem kveðið er á um í reglugerðinni, þ.e. kl. 21.00.

Þetta er gert til að gæta meðalhófs í ljósi þess hve skammur fyrirvari er á gildistöku reglugerðar um hertar sóttvarnaaðgerðir. Rekstraraðilar eru hvattir til þess að gæta áfram ýtrustu sóttvarnaráðstafana, svo sem með greiðu aðgengi að handspritti, tryggja grímunotkun og gæta að 1 metra nálægðarmörkunum milli ótengdra aðila.

Mynd/aðsend