“Við hvetjum menningarstofnanir, æskulýðsgeirann, sveitarfélög, skóla, fræðsluaðila, fyrirtæki, ungt fólk og öll önnur sem áhuga hafa á alþjóðasamstarfi að nýta tækifærið og taka þátt.”

Mennta- og menningarsvið Rannís sækir Akureyri heim og býður til hádegisfundar í Hofi á Akureyri kl. 12–13 miðvikudaginn 4. maí.

Starfsfólk Rannís verður til taks eftir kynningarnar fyrir þau sem vilja ræða möguleikana í norrænu og evrópsku samstarfi nánar.

Markmiðið er að kynna tækifæri sem bjóðast innan evrópskra og norrænna styrkjaáætlana, svo sem:

  • Erasmus+,
  • áætlun ESB fyrir öll skólastig og æskulýðsmál,
  • Creative Europe,
  • kvikmynda- og menningaráætlun ESB,
  • Nordplus,
  • menntaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar,
  • og Uppbyggingarsjóð EES.

Vinsamlegast skráðu þig með því að smella hér svo súpa verði klár og smjér, nú og stólar lausir fyrir vér og þér.

Nánari upplýsingar má finna hér: Styrkir til menntunar og menningar | SSNE.is

Fólk má gjarnan vekja athygli á fundinum á heimasíðum og samfélagsmiðlum.

Hér er facebook viðburður til að melda sig á og fá áminningu þegar að fundi kemur, nú eða deila.


Aðsent