27. júní birti Trölli.is frétt þess efnis að Bæjarráð Fjallabyggðar samþykkti að ganga til samninga við  í Fjallabyggð 2019-2022. Sjá Frétt

Úr fundargerð:
2. 1905060 – Tilboð á skóla- og frístundaakstri 2019-2022

Lagt fram vinnuskjal deildarstjóra stjórnsýslu- og fjármáladeildar, dags. 18.06.2019 þar sem fram kemur að tilboð hafi verið opnuð í skóla- og frístundaakstur í Fjallabyggð 2019-2022 í ráðhúsi Fjallabyggðar þann 18.06.2019 kl.11.00.
Eftirfarandi tilboð bárust :
Ævar og Bóas ehf. kr. 25.000.-
Akureyri Excursion ehf. kr. 8.893.-
Hugheimur ehf. kr. 15.300.-
Suðurleiðir ehf. kr. 9.145.

Á 612 fundi Bæjarráðs var samþykkt að hafna tilboði Akureyri Excursions ehf þar sem í ljós hefur komið að félagið uppfyllir ekki fyllilega skilyrði útboðsgagna í skóla- og frístundaakstri 2019-2022.

Bæjarráð samþykkir að fela deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála að ganga til samninga við næst lægstbjóðanda, Suðurleiðir ehf. að uppfylltum skilyrðum útboðsgagna.

 

Forsíðumynd: Mercedes-Benz Ísland – Askja