Þann 3. apríl afhentu Hollvinasamtök Dalbæjar heimilinu fyrstu gjöf samtakanna.

Elísa Ingvarsdóttir hjúkrunarframkvæmdarstjóri Dalbæjar veitti gjöfinni móttöku frá Rúnu Kristínu Sigurðardóttur, formanni samtakanna.

Um er að ræða Carevo sturtubekk, en hann gengur undir nafninu “bláa lónið”. Tekur það við af eldri sturtubekk sem var orðinn úreldur og kominn vel til ára sinna.

Heildarkostnaður gjafarinnar er um 750 þúsund.

Stjórn Hollvinasamtakanna þakkar félögum sínum fyrir þeirra framlag. Fjöldi félaga er um 160 og er það ósk okkar að fá enn fleiri félaga, til að geta stutt við heimilið enn frekar.

Hægt er að fara inn á skráningarsíðu samtakanna og gerast félagsmaður. HÉR

Elísa Ingvarsdóttir hjúkrunarframkvæmdarstjóri Dalbæjar veitti gjöfinni móttöku frá Rúnu Kristínu Sigurðardóttur, formanni samtakanna.

Myndir af facebook síðu samtakanna.