Kjöri á Íþróttamanni Dalvíkurbyggðar verður lýst við hátíðlega athöfn í Menningarhúsinu Bergi fimmtudaginn 11. janúar 2024 kl. 16:30.

Dagskrá

  • Gestir boðnir velkomnir með kaffi og kleinum
  • Tónlistaratriði
  • Fulltrúi íþrótta- og æskulýðsráðs veitir viðurkenningar úr Afreks – og styrktarsjóði Dalvíkurbyggðar
  • Fulltrúi íþrótta- og æskulýðsráðs lýsir kjöri Íþróttamanns Dalvíkurbyggðar 2023
  • Áætlað er að athöfn ljúki um kl. 17:30

Öll velkomin

Íþrótta- og æskulýðsráð Dalvíkurbyggðar

þau sem eru tilnefnd:

Mynd/Dalvíkurbyggð