Þátturinn Tíu Dropar er á dagskrá FM Trölla á sunnudögum kl. 10 – 12. Í dag verður síðasti þátturinn á þessu ári.

Stjórnendur þáttarins eru Tröllahjónin Kristín Magnea Sigurjónsdóttir og Gunnar Smári Helgason sem senda þáttinn út í þráðbeinni útsendingu frá Studio I í Syðri-Glaumbæ á Gran Canaria.

Í þættinum í dag verða leikin jólalög bæði ný og ekki alveg eins ný, spjallað um heima og geima, uppskrift vikunnar verður á sínum stað og aldrei að vita hvað gerist fleira.

FM Trölli er á FM 103.7 MHz á Tröllaskaga, í Skagafirði og á Hvammstanga og nágrenni.

Einnig má hlusta á netinu, hér á trolli.is, í Spilaranum t.d. í Apple TV og ýmsum nýrri sjónvarpstækjum, á vefsíðunni radio.garden og á tunein.com

Minnum einnig á skip.trolli.is sem er sérstakur lágbitastraumur fyrir minni netsambönd.