Miðvikudaginn 25. september munu nemendur 6.-10. bekkjar Grunnskóla Fjallabyggðar hlaupa Ólympíuhlaup ÍSÍ
(hlaupið hét áður Norræna skólahlaupið).

Að þessu sinni hafa nemendur ákveðið að láta gott af sér leiða og safna áheitum fyrir Sigurbogann, styrktarfélag Sigurbjörns Boga Halldórssonar, 7 ára fjölfatlaðs drengs á Siglufirði.

Sjá eldri frétt á trolli.is um Sigurbjörn Boga hér.

Nemendur hlaupa 2,5 km hring og geta þau að hámarki hlaupið 4 hringi, þ.e. 10 km.
Upphæðin á hvern hring er 250 krónur eða að hámarki 1.000 krónur á hvern styrktaraðila.

Með von um jákvæðar undirtektir!
Nemendur 6.-10. bekkjar Grunnskóla Fjallabyggðar

Heimild: Vefsíða Gunnskóla Fjallabyggðar