Stóri Plokkdagurinn verður haldinn sunnudaginn 28. apríl nk. Fjallabyggð mun taka þátt og leggur til poka sem aðgengilegir verða áhugasömum Plokkurum í íþróttamiðstöðvum Fjallabyggðar bæði í Ólafsfirði og á Siglufirði.

Íbúar og vinir Fjallabyggðar eru hvattir til að taka virkan þátt í Stóra Plokkdeginum og tína plast og pappa annað rusl sem fallið hefur til frá íbúum, framkvæmdum eða þungaflutningum innan marka sveitarfélagsins.

Söfnunarstaðir í Fjallabyggð verða eftirfarandi:

Ólafsfjörður:
Túnið við íþróttamiðstöðina (hjá ærslabelgnum)
Brennusvæðið vestan ós

Siglufjörður:
Malarvöllurinn