VIRK er heimilt samkvæmt lögum að styrkja og stuðla með öðrum hætti að rannsóknum, þróun og uppbyggingu í atvinnutengdri starfsendurhæfingu. Veittir eru styrkir til virkniúrræða, rannsóknarverkefna og uppbyggingar- og þróunarverkefna einu sinni á ári og þurfa umsóknir um styrkina að hafa borist sjóðnum 15. febrúar nk. inn á netfangið styrkir@virk.is.

Sérstaklega verður horft til verkefna og/eða úrræða sem sniðin eru að þörfum einstaklinga af erlendum uppruna í styrkveitingum VIRK árið 2021.

Aðeins umsóknir sem uppfylla allar reglur um styrki VIRK eru teknar til greina. Nánari upplýsingar, stefnur og reglur varðandi umsóknir og umsóknareyðublöð má finna hér.

Umsóknarfrestur er til og með 15. febrúar 2021.