Þar sem stórviðburðurinn Fiskidagurinn mikli er í dag þá ætlar Lögreglan á Norðurlandi eystra í samráði við Vegagerðina að notast við umferðarstýringu í Múla-og Strákagöngum flaugardaginn 12. ágúst. 

Tilmæli um umferðastýringu um Múla- og Strákagöng er eftirfarandi.

“Gerum ráð fyrir að umferð í dag verði stýrt f frá hádegi til miðnættis. Um miðnættið verður síðan einstefna um Múlagöng á umferð frá Dalvík til Ólafsfjarðar, í tæpa klukkustund.  Þess ber að geta að hugsanlega verði gripið til þessarar stýringar ef umferð verður mikil og vandræði skapast.    

Sökum þess má búast við umferðartöfum við göngin, allt að 16 mínútum við Múlagöng en töluvert skemur við Strákagöng  (Sem dæmi ef vegfarandi er „óheppinn“, kemur að Múlagöngum – nýlega búið að loka lokunarslá á akstursstefnuna þá getur sá hinn sami þurft að bíða 16 mín eftir að opnað sé aftur)”.

Umferðastjórn og banna flug dróna yfir hátíðarsvæði Fiskidagsins