Í gær á Þorláksmessukvöld var dregið í jólaleik SR Bygg á Siglufirði.

FM Trölli sendi út beint frá Kanarí og Siglufirði frá drættinum, í þættinum Tíu Dropum á Þorláksmessukvöld þar sem Kristín Magnea og Gunnar Smári voru í helli á Kanarí og Þorsteinn Sveinsson í SR Bygg á Siglufirði.

Fyrsti vinningur var að vanda mjög veglegur, JBL Partybox 310 að verðmæti um 100.000 kr. og það var Elfa Sif Kristjánsdóttir sem hreppti hann.

Halldór Þormar fulltrúi sýslumanns dró alls um 60 vinningshafa upp úr pottinum, hafa vinningar aldrei við eins margir og veglegir og í ár.

Magnús Magnússon sendir sms á vinningshafa fyrir hádegi í dag til að tilkynna þeim glaðninginn.

Trölli.is óskar öllum vinningshöfum í jólaleik SR Bygg til hamingju.

Myndir/Þorsteinn Sveinsson