ATH: Ef þið smellið á mynd í greininni er hægt að fletta ljósmyndunum fram og til baka einum og sér. En auðvitað er skemmtilegast að skoða alla myndaskýringar texta og sögunna í heild sinni.
Það er við hæfi um áramót þar sem vinsælt er að setja á sig grímur og hatta og klæða sig í allskyns búninga að minnast á alvöru grímuböll sem voru vinsæl hjá mörgum kynslóðum barna og nemenda í Gagnfræðiskóla Siglufjarðar.
En samtímis er ekki hjá því komist að minnast líka á ljósmyndarann Kristfinn Guðjónsson og Ljósmyndastofu Siglufjarðar.
Því það sést vel í þessari myndasyrpusögu að margir skruppu á stofuna til Kristfinns og létu festa sig og sína vini á filmu eftir að hafa haft mikið fyrir því að skapa glæsilega grímubúninga.
Svo er það augljóst að Ljósmyndastofan skipti Siglfirðinga miklu máli og það er allt mögulegt dregið inn á stofuna til Kristfinns og myndað í bak og fyrir.
Það er dásamlegt að fletta í gegnum margar af þessum um 180.000 myndum sem til eru í Ljósmyndasafni Siglufjarðar og að hafa leyfi frá forráðamönnum safnsins að sýna ykkur útvöld brot úr þessum bæjarlífsfjársjóði.
En það sem þið fáið að sjá hér er bara dropi í hafið.
Greinarhöfundur sem er ljósmyndadellukarl sjálfur hefur valið myndirnar mikið út frá því að finnast þær skemmtilegar og útfrá að fallegur bakgrunnsdúkur Kristfinns sést á flestum myndunum. Þessi bakgrunnur er til ennþá og var síðast notaður 2015 og hægt er að sjá marga núlifandi Siglfirðinga við tjaldið á heimasíðunni SigloFoto.
Myndaskýringar texta vantar við sumar af þessum ljósmyndum en þegar hann til eru þau orð látin fylgja með.
Ein og önnur búningaljósmynd gæti verið auglýsingamynd fyrir Leikfélag Siglufjarðar, Kristfinnur tók mikið af svoleiðis myndum líka.
ATH: Greinarhöfundur hefur endurunnið allar myndirnar svo að þær geri sig betur á nútíma skjátækjum.
Allskyns Grímubúningar
Byrjum á grímubúningamynd af saklausum 16 ára nemendum við Gagnfræðiskólans. En val þeirra á búningaþema varð fyrir misskilning frá „fullorðnu“ fólki mikill innanbæjarskandall, eins og lesa má úr myndaskýringartexta frá Steingrími Kristinnsyni undir myndinni.
Í lokin kemur í rauninni stærsti kaflin með ennþá fleirum skemmtilegum “gott og blandað” myndum í kafla sem ég kalla:
Komdu bara eins og þú er klædd / ur.
Ég bara gat ekki stillt mig, því þessar myndir eru alveg dásamlegar og sýna svo vel fjölbreytilegt mannlíf Siglufjarðar.
“Þetta eru vinirnir Sveinbjörn Blöndal listmálari og Hörður Óskarsson í grímubúningum sínum – þeir mættu saman í þessum klæðnaði á grímuball Gagnfræðaskólans á Siglufirði, þessara andstæðu \\\”persóna\\\” nasistanum og blökkumanninum sem nasistar hötuðu.
Þá kepptust menn og konur við að mæta á dansleiki í sem frumlegustum búningi- og yfirleitt voru veitt verðlaun fyrir þá frumlegustu og skemmtilegustu. Fyrir meira en 50-55 árum, bar það við að allt ætlaði vitlaust að verða á Siglufirði, þegar tveir ungir gárungar mættu á einn slíkan dansleik. Þetta atvik var á hversmanns vörum og margar skoðanir á þessum atburði. Sú frásögn er ég heyrði oftast (og man) frá þessum atburði, þarf ekki endilega að vera sú eina rétta, en hún var á þessa leið, í stuttu máli.
Þetta olli miklu uppnámi hjá kennurum og ekki síður hjá foreldrum.
Söguna þekki ég ekki með öruggri heimild, en svona man ég þetta. Gott væri ef einhver bætti um betur. – sk Grímuböll voru hér áður fyrr, all tíður skemmtanamáti.
Eins og áður segir voru þarna að verki tveir ungir menn um 16 ára gamlir (?) sem fengu vinkonur sínar sem kunnu á saumavélar, sér til aðstoðar. Á þessum tímum voru nasistarnir að hefja valdabrölt sitt í Evrópu, við hreinsanir og kynþáttahatur, meðal annars töldu þeir blökkumenn, til óæðri kynstofns.
Í þessum anda bjuggu félagarnir til persónurnar; nasista og blökkumanna, til að sína þversögnina í heimsku nasistanna. En þetta uppátæki var greinilega misskilið því allt fór úr böndunum, í foreldra og fjölskylduhúsum.
Það átti að reka þá úr skólanum, úr bænum, setja þá í fangelsi, flengja þá, ofl.ofl. – Í dag og raunar á þeim tíma einnig, var og er hlegið af þessu írafári almennings, sem lét stjórnast á fyrirfram ákveðnum fordómum á drengjunum og án þessa að reyna að nálgast hinn raunverulega sannleika og tilgang, það er andhverfunni.“
Auðvitað sýna myndirnar að hönnun grímubúningana hafa sterk tengsl við ráðandi tíðaranda og kannski er mikið sótt úr vinsælum bókum og kvikmyndum í Nýja Bíó.
Þessi mynd minnir mig á að margir af þessum heimatilbúnu búningum gengu í arf og voru endurnotaðir, breyttir og óbreytir árum saman og þessi Línu Langsokkur hárkolla er til og notuð enn í dag eins og sjá má á myndinni hér fyrir neðan.
Komdu bara eins og þú ert klædd / ur…
Í þessum kafla eru margar skemmtilegar og kannski fyrir okkur nútíma fólk furðulegar myndir, sem sýna að Siglfirðingar skemmta sér vel á Ljósmyndastofunni hjá Kristfinni og allt er einhvern veginn leyfilegt að taka með sér í „Dropi in“ myndatökur og vina-, vinkonu- og vinnuhópar koma og stilla sér upp eða setja í gang allskyns eigin leikþætti undir stjórn ljósmyndarameistarans sem virðist hafa opið bæði dag og nótt.
En auðvitað voru flestar myndirnar sem eru tekna á Ljósmyndastofunni allskyns velgerðar venjulegar fjölskyldu og krúttlegar gæruskinnabarnamyndir.
Vinir… með og án flösku
Það eru til merkilega margar ljósmyndir með þessu þema. “Ég og flaskan mín” og vinir sem deila flösku.
Vinkonur að skemmta sér
En stelpurnar skemmta sér greinilega vel… án flösku.
Hljómsveitir mæta í myndatöku
Allskyns dýr koma líka í myndatöku
Vinnugallar og einkennisbúningar
Að lokum, nokkrar “venjulegar” krúttlegar krakkamyndir
Fjársjóður í gömlum augnablikum
Það er augljóst að ljósmyndastofa Siglufjarðar var merkileg stofnun og Kristfinnur hlýtur að hafa verið alveg einstakur karakter.
Atvinnuljósmyndari, með ótrúlega gott auga fyrir hinu manneskjulega í öllum augnablikum sem hann sér.
Hann hefur greinilega líka gott lag á að fá kúnnana sína í að slappa af og hann lokkar fram gleði og það einstaka sem býr öllum lifandi verum.
Fólkið sem fór á stofuna hans á ýmsum tíma sólarhringsins skemmti sér vel og allir fóru heim með flottar og fallegar myndir sem þeim þótti vænt um að skoða og eiga…. lengi…lengi og svo fengum við að erfa þær allar í gengum Ljósmyndasafn Siglufjarðar.
Höfundur og endurvinnsla ljósmynda:
Jón Ólafur Björgvinsson
Forsíðumynd:
Ljósmyndari: Kristfinnur Guðjónsson.
Allar ljósmyndir eru birtar með leyfi frá Ljósmyndasafni Siglufjarðar.
Nýlegar birtar greinar og sögur eftir sama höfund:
KAÐLA OG KLIFUR ÆVINTÝRA MYNDASYRPUSAGA
JÓLASVEINNINN Í KJÖTBÚÐINNI ER AFI MINN
HRUN OG BRUNI – MYNDASYRPUSAGA
SUNNUDAGUR Í ZÍON OG FL. SKEMMTILEGT!
TÍMARNIR BREYTAST OG TRÖLLIN MEÐ….
ÁLFHÓLLINN OKKAR OG ÁLF- HYRNAN HANS!
MEISTARI HLÖÐVER! GEFÐU OKKUR FRÍ. “MYNDASYRPA”
PISTILL: SIGLFIRSKAR SÖGUR, LJÓSMYNDIR OG AÐRAR (Ó)MERKILEGAR FRÉTTIR!
ÓÞEKKTUR DRENGUR! F. ? – D. APRÍL 1944
PÉTUR “ÓDÁNI” ER HEIMSINS ELSTI MAÐUR!