Búið er að setja inn nýja kauptaxta sem taka gildi þann 1. janúar nk. inn á heimasíðu Einingar-Iðju.

Laun og launatengdir liðir skv. núgildandi kjarasamningum munu hækka þann 1. janúar 2021 sem hér segir: 

Starfsfólk á almennum vinnumarkaði
Þann 1. janúar 2021 hækka kauptaxtar á almenna markaðinum um kr. 24.000 og almenn mánaðarlaun fyrir fullt starf hækka um kr. 15.750. Aðrir kjaratengdir liðir kjarasamningsins hækka um 2,5% á sömu dagsetningu. Einnig hækka lágmarkstekjur fyrir fullt starf og verða 351.000 kr. á mánuði fyrir fullt starf frá 1. janúar 2021. 

Starfsfólk sveitarfélaga
Þann 1. janúar 2021 hækka kauptaxtar hjá sveitarfélögunum um kr. 24.000. 

Starfsfólk ríkisins
Ný launatafla tekur gildi hjá ríkinu 1. janúar 2021 sem byggir á álagsþrepum í stað aldursþrepa. Varpa þarf störfum í nýju töfluna, tryggt verður að enginn sem raðast fyrir neðan launaflokk 17 í dagvinnutaxta í desember 2020 fái minna en sem nemur kr. 24.000 hækkun á dagvinnulaunum. Aðrir fá að lágmarki 18.000 kr. hækkun. Í einhverjum tilvikum gæti þurft að varpa einstaklingi í hærri flokk/þrep en röðunarforsendur gera ráð fyrir. Til að fá frekari hækkun á röðun verður viðkomandi fyrst að uppfylla skilyrði samkvæmt nýjum röðunarforsendum.

Mynd pixabay