Afmælishelgi Berjadaga hefst fimmtudagskvöldið 16. ágúst kl. klukkan 20:00 – 21:30 í Ólafsfjarðarkirkju. Helgin hefst með fjörmikilli dagskrá fiðluleikaranna Páli Palomares og Veru Panitch. Páll og Vera sitja nú bæði í leiðandi stöðum við Sinfóníuhljómsveit Íslands eftir langt og strangt einleikaranám. Þau eru upprennandi listamenn á Íslandi eftir búsetu í Danmörku, sem er heimaland Veru.

Á tónleikunum hljómar hin stóra, Chaconna, eftir Bach auk einleiksstykkja eftir Fritz Kreisler og Manuel de Falla. Eva Þyri Hilmarsdóttir píanóleikari bætist við í verkum eftir Piotr Tchaikovsky og Pablo de Sarasate fyrir fiðlu og píanó. Páll og Vera léku heillandi dagskrá í Ríkisútvarpið á aðfangadagskvöld þar sem þau fluttu dúetta. Núna endurtaka þau samleikinn á Berjadögum. Í þetta skiptið er það margslungið tónmál dúettasnillingsins Béla Bartók. Einnig leika þau saman sjaldheyrð lög eftir Shostakovich ásamt Evu Þyri.

Miðaverð: 3.000 kr.
Frítt fyrir börn og unglinga 18 ára og yngri
Hátíðarpassi Berjadaga: 7.000 kr. (allir viðburðir)
Miðasala: midi.is og á tix.is og við inngang Ólafsfjarðarkirkju

/ The Berjadagar anniversary weekend begins on Thursday August 16th in Ólafsfjörður Church. The festival commences with a lively program presented by the violinists Páll Palomares and Vera Panitch. Páll and Vera hold leading positions with the Iceland Symphony Orchestra following their soloist studies in Denmark, where Vera grew up.

The concert features the great Chaconne by Bach and solo works by Fritz Kreisler and Manuel de Falla. The pianist, Eva Þyri Hilmarsdóttir, joins Páll and Vera in works by Piotr Tchaikovsky and Pablo de Sarasate for violin and piano. Páll and Vera played a charming duo program on the Icelandic State Radio last Christmas Eve. This time they tackle the complex musical language of Béla Bartók. Along with Eva Þyri, they also perform melodies by Shostakovich that are rare occurences on concert programs.

Ticket price: 3.000 kr.
Free entrance for children up to 18 years of age
Berjadagar Festival Pass: 7.000 kr. (all events)
Ticket sales: midi.is, tix.is and at the entrance of Ólafsfjörður Church

 

Frétt og myndir: aðsent