Pílufélag Siglufjarðar stendur fyrir pílumóti á föstudaginn langa þar sem bæði ungmenni og fullorðnir fá tækifæri til að spreyta sig við spjöldin. Um er að ræða mót sem fram fer í tveimur flokkum og er opið öllum áhugasömum.

Keppt verður í U-18 flokki klukkan 14:30 og er þátttökugjaldið 1.000 krónur. Síðar um kvöldið, klukkan 19:30, fer fram keppni í 18 ára og eldri flokki þar sem þátttökugjaldið er 3.500 krónur. Samkvæmt tilkynningu frá Pílufélagi Siglufjarðar er gert ráð fyrir 20 manna móti og því ljóst að plássin geta fyllst hratt.

Í tilkynningunni er lögð áhersla á að allir séu velkomnir, óháð reynslu, og að markmiðið sé að skapa skemmtilega stemningu í kringum pílukastið.

Skráning fer fram með því að senda tölvupóst á netfang félagsins, pfsiglufjardar@gmail.com, og eru áhugasamir hvattir til að tryggja sér sæti tímanlega.

Facebook viðburður mótsins hér.

Mynd: María Elín Sigurbjörnsdóttir