Siglufjarðarvegur, sms þjónusta Vegagerðarinnar.

Vegagerðin mun bæta við í haust kaflanum frá  Almenningsnöf til Siglufjarðar á þjóðvegi 76 Siglufjarðarvegi við þá vegi sem sms boð um snjóflóða- og hrunhættu eru send út til vegfarenda.  Einnig verða send út boð vegna sigs vegarins í Almenningum. Vegfarendur sem þess óska geta gerst  áskrifendur að þessum viðvörunum.  

Sérstaklega er því beint til þeirra sem fara oft um veginn, vegna atvinnu sinnar, skólasóknar eða af öðrum ástæðum, að nýta sér þessar viðvaranir.  

Um er að ræða eftirfarandi stig vegna snjóflóðahættu:

A:  varað er við snjóflóðahættu á næstu klukkustundum.

B:  lýst yfir óvissustigi,  sem þýðir að snjóflóðahætta er viðvarandi og vegfarendur hvattir til að vera ekki á ferðinni að nauðsynjalausu.

C:  lýst yfir hættustigi, veginum lokað.

D:  hættustigi aflýst og vegurinn opinn.

Stig vegna sigs vegar í Almenningum:

B   lýst yfir hættustigi 1, vegurinn opinn 1

C  lýst yfir hættustigi 2, veginum lokað

D  hættustigum aflýst, vegurinn opnaður

Þeim vegfarendum sem áhuga hafa á að fá viðvaranir er bent á að senda tölvupóst þar sem kemur fram nafn og gsm númer á netfangið  umferd@vegagerdin.is  eða í upplýsingasíma Vegagerðarinnar 1777.

Mynd/Jón Ólafsson