INNGANGUR

Við erum svo heppin að við getum skroppið daglega í tímaferðalög á Ljósmyndasafni Siglufjarðar sem hýsir um 180.000 gamlar ljósmyndir.
Í þessari ljósmyndasyrpu sögu eru ekki sögð mörg orð, því myndirnar (flestar frá tímabilinu 1968 – 1970+) tala sínu eigin máli og sýna okkur lífið um borð í merkilegu Siglfirsku tankskipi sem hét Haförninn og við erum svo heppin að um borð er áhugaljósmyndari sem myndar allt í bak og fyrir og orðin “sjón er sögu ríkari” eiga vel við þessa myndasyrpusögu.

Áhugamanna ljósmyndarinn Steingrímur Kristinsson er með eigið framköllunarherbergi um borð og stundum sýnir hann skipsfélögum sínum “Slidesmyndir” sama dag og hann tók myndirnar.

Greinarhöfundur hefur tekið sér það bessaleyfi að velja út og tölvu-endurvinna um 70 dásamlegar ljósmyndir af rúmlega 3000 Hafarnarmyndum svo að þær geri sig betur í nútíma skjátækjum. Ljósmyndirnar sýna okkur fjölhæfni Steingríms sem ljósmyndara og hans einstaka hæfileika að smella alltaf af á réttum augnablikum. Myndirnar eru allar með tölu einstaklega fallegar og skemmtilegar og sýna okkur lífið um borð í Haferninum, sem oft á tíðum verður eitthvað allt annað en bara síldarflutningar tankskip…

… því Haförninn breytist hreinlega stundum líka í Skemmtiferðaskip.

Ég læt það nægja að vísa í eftirfarandi staðreyndir um Haförninn með tilvísun í þessar tvær blaðagreinar frá 1966. Þeir sem vilja lesa meira um Haförninn geta fundið ýmislegt bitastætt á heimasíðu Steingríms hér: Ýmsar upplýsingar um tankskipið Haförninn Siglufirði, ofl. sem keyptur var á þeim tíma þar sem síldin hélt sig langt frá landi.

Neisti 16. maí 1966
S. R. kaupa tankskip til síldarflutninga

Síldarverksmiðjur ríkisins hafa fest kaup á tankskipi, m.s. Lönn frá Bergen, til síldarflutninga. Skipið verður einnig notað til lýsisflutninga og verður það afhent S.R. um næstu mánaðamót.

M.s. Lönn er byggt í Haugasundi árið 1957, og er nú nýkomið úr 8 ára flokkunarviðgerð í Hollandi.

Skipið er um 3700 lestir að stærð og getur flutt um 22 þúsund mál af síld auk nokkurs magns af brennsluolíu og vatni fyrir síldveiðiskipin. Það er 100 m á lengd 13½ m á breidd og ristir fullhlaðið 5,7 m.

Í skipinu er 2100 hestafla vél frá Burmeister & Wain, en gang hraði skipsins er 11-12 mílur á klst. S: R. munu yfirtaka skipið um næstu mánaðamót, og verður þá hafist handa um að útbúa skipið til síldarflutninganna.

Í skipið verða settir tvær síldardælur til lestunar skipsins og kranalyftur til losunar.

Búist er við, að það verk muni taka um mánaðartíma, svo að skipið geti komið á síldarmiðin í byrjun júlímánaðar.

Heimahöfn skipsins verður Siglufjörður.”

Vísir 3. ágúst 1966
Glæsilegt síldarflutningaskip hefur bætist í flotann

Í morgun Sigldi nýtt og glæsilegt skip inn Seyðisfjörð, eitt hið fullkomnasta sinnar tegundar í heimi, — síldarflutningaskip Síldarverksmiðja ríkisins, Haförninn. Skipið er keypt í Þýzkalandi og var afhent Íslendingum í Bremerhafen fyrir viku.

Skip þetta verður i flutningum af síldarmiðunum til ríkisverksmiðjanna, aðallega norðanlands.

Skipstjóri er Sigurður Þorsteinsson.

En við byrjum á mynd af manninum sem skapaði tímavélina sem við ferðumst í og hann bíður okkur um borð í Haförninn og sýnir okkur þann furðuheim sem honum fylgir.

Myndunum er skipt upp í eftirfarandi kafla:

• AÐALPERSÓNUR ERU SÖGUFRÆGT SIGLFIRSKT TANKSKIP OG ÁHÖFNIN Á HAFERNINUM.

• ÁHÖFNIN ER SAMHELDIN OG MARGIR ERU SVAKALEGIR KARAKTERAR

• ÓVÆNT HEIMSÓK Í HORNBJARGARVITA

• HAFÖRNINN OG HAFÍS

• SKEMMTIFERÐASKIPIÐ HAFÖRNINN

• ALSKYNS SKEMMTANIR OG UPPÁKOMUR

• FJÖR Í MESSANUM…

• AÐ LOKUM…

ATH: Ef þið smellið á mynd í greininni er hægt að fletta ljósmyndunum fram og til baka. En auðvitað er skemmtilegast að skoða alla myndatexta og söguna í heild sinni. Ef þú, lesandi góður, villt skoða myndirnar betur með því að stækka þær er best að fara beint inn á vefinn trolli.is og finna greinina þar. Ef slóðin er opnuð í gegnum Facebook getur verið lokað á að skoða myndirnar í stærra formi.

SELFIE! frá 1968, Steingrímur Kristinsson, timburmaður á Haferninum.

AÐALPERSÓNUR ERU SÖGUFRÆGT SIGLFIRSKT TANKSKIP OG ÁHÖFNIN Á HAFERNINUM.

Haförninn á Reyðarfirði. Ljósmyndari: Margrét Steingrímsdóttir.
Drekkhlaðinn á leið í land með fullt af síld.
Síldarlöndunarsveifla úti á ballarhafi. Hann var búinn að æfa sig lengi á Rauðkukaðlinum heima á Sigló.
Fastur í kýrauga! Er ekki allt í lagi strákar?
Síldarsöltun um borð í Haferninum. Guðmundur Arason 1. stýrimaður og Salmann Kristjánsson háseti (yfirpæklari)
(Viðbótarupplýsingar um síldarsöltun um borð í Haferninum bárust greinarhöfundi 8 apríl frá Salmann Kristjánssyni.) Lokauppgjör fyrir hlut Salla vegna síldarsöltunar sumarið 1968. Heimildir og ljósmyndun: Salmann Kristjánsson.
Síldarsöltunarstrákar við vinnu. Guðmundur Arason 1. stýrimaður, Sigurjón Kjartansson dælumaður / háseti og ?
Listi yfir hluthafa í síldarsöltunar samvinnufélaginu ÖRNINN. Greinarhöfundur sér að faðir minn Björgvin S Jónsson fór með í tvo túra sumarið 1968. Heimildir og ljósmyndun: Salmann Kristjánsson.

Hægt er lesa meira um síldarsöltun um borð í haferninum úti við Jan Majen í nýlega birtri frásögn Sigurðar Ólafssonar í Fiskifréttum.
Sjá meira hér: Þegar menn björguðu síldinni

Leiðinda viðhaldsvinna með bros á vör. Sigurður Jónsson á Eyri (Drumburinn)
F 59, það var greinilega bílaþvottastöð um borð líka í Haferninum. Ægir Björnsson stýrimaður / bátsmaður átti bílinn, Gunnar Tómasson með kústinn.
Það gefur á bátinn við… Ekki alltaf gott veður.

ÁHÖFNIN ER SAMHELDIN OG MARGIR ERU SVAKALEGIR KARAKTERAR

Guðmundur Björnsson háseti+dælumaður, Ægir Björnsson bátsmaður+stýrimaður, Birgir Þórbjarnarson háseti+stýrimaður, Sigurjón Kjartansson háseti+dælumaður, Gunnar Tómasson háseti, Sigurður Jónsson háseti +bátsmaður og Steingrímur Kristinsson timburmaður.
Ljósmyndari: Pálmi Pálsson 2 stýrimaður tók myndina með myndavélinni hans Steingríms.

“Drumburinn” er svo sannarlega réttnefni á honum Sigga á Eyri.
Snorri Jónsson, Þórður Þórðarson ( á Nesi/ í Hrímni) og Stefán Árnason. (Stebbi Lár)
Hafþór Rósmundsson ungur að árum.
Salmann Kristjánsson. (Salli) Nýfermdur, eða?
Steingrímur Kristinsson. (Baddý í Bíó) 1 stýrimaður Guðmundur skrapp í frí og bað Steingrím að geyma einkennisbúninginn sinn.
Stebbi heitinn Láru var yndislega skemmtilegur karakter.
Stefán Árnason eitthvað að brasa með hátalara um borð í Haferninum. Stebbi og loftskeytamaðurinn eru að redda músík vegna vinnu á dekki (Haförninn lá við ankeri í góðu veðri)

ÓVÆNT HEIMSÓK Í HORNBJARGARVITA

TEXTI FRÁ STEINGRÍMI KRISTINSSYNI:

Frásögn af heimsókn þegar skipverjar á Haferninum heimsóttu Vitavörðinn á Horni, Jóhann Pétursson og fjölskyldu og framkvæmdu í leiðinni „ólöglegt athæfi (grátt svæði).

Myndirnar í þessari syrpu, voru teknar er skipverjar á Haferninum framkvæmdu ólöglegt athæfi, það er þeir gengu á land með „smyglvarning,“ tvo kassa af Tuborg bjór, tvær eða þrjár vinflöskur, vindla og sælgæti.

Tilefni þessarar „smyglferðar“ var að sýna vitaverðinum á Hornbjargi þakklæti fyrir hjálpsemina árið 1968, þegar hafísinn var sem mestur fyrir norðurlandi í byrjun aprílmánaðar árið 1968.

Vitavörðurinn hafði tekið sér þunga talstöð og enn þyngri rafgeymir í fang og gengið á fjall, þaðan hafði hann góða yfirsýn yfir hafísflákann, talsvert betri en sást úr mastri Hafarnarins og ratsjám, og leiðbeindi hann skipstjóra til um stefnu að grisjóttum svæðum og vökum. Þetta gerði vitavörðurinn óbeðinn og hafði samband við skipið.

Heimsóknin, klukkan 6 að morgni, kom vitaverði og fjölskyldu hans alveg á óvart. Það skal tekið fram að viðkomandi bjór og meðlæti hafði áður fengið eðlilega tollafgreiðslu á Siglufirði, þó svo að engum hefði á þeirri stundu dottið í hug stoppið við Hornbjarg.

Í landgöngunni voru Guðmundur Arason 1. stýrimaður, Ægir Björnsson bátsmaður, Bergsteinn Gíslason loftskeytamaður, Sigurður Jónsson háseti og ljósmyndarinn Steingrímur Kristinsson timburmaður, sem sýndi svo skipverjum myndirnar á tjaldi, eftir kvöldverð sama dag.”

(Ég framkallaði svarthvíta filmuna, og bjó síðan til eftir þeim pósítífar 5x5sm glærur á glerplötur. Sem svo var varpað á tjald, með venjulegum skyggnuvarpa.) SK.

Hægt er að lesa meira um þetta hafísævintýri Hafarnarins 1968 hér:
Siglt í hafísnum 1968

og líka

Fyrsta siglingin. (1966)

Á siglingu að hrikalegri klettafjöru Hornbjargarvita. Guðmundur Arason í stafni.
Góðar veigar bornar í land.Sigurður Jónsson og Guðmundur Arason.
Fjaran er falleg en varasöm. Ægir Björnsson við sjóinn, Sigurður Jónsson, Bergsteinn Gíslason loftskeytamaður og Guðmundur Arason.
Gengið í sjó upp bratta fjörubrekkuna.
Séð niður í vitavíkurfjöruna.
Hornbjargarviti fær óvænta heimsókn kl. 06.00.
Vitavarðarfrúin mætti smyglurunum á bæjarhlaðinu. Ægir, Bergsteinn og vitavarðarkonan, (vantar nafn?) sem sá okkur ekki fyrr en hún kom út, en hún var á leið til að taka veðurlýsingu og fleira frá veðurstöðvar mastri.

Greinarhöfundi bárust eftirfarandi upplýsingar skömmu eftir birtingu:

Daginn snillingar

Var að skoða myndir frá ferð til Hornbjargsvita 1969 og þar eru myndir af Jóhanni vitaverði og innan sviga nafn vantar. Sú sem er á mynd, er amma mín Soffía Kristín Sigurjónsdóttir, hjúkrunarkona, sem var gift Jóhanni á þessum tíma. Stelpan á myndunum er ekki barn hennar eða þeirra, heldur systir mín Jóhanna Stella Baldvinsdóttir, fædd 7.mars 1966.

Vildi bara koma þessu til ykkar, svakalega gaman að sjá þessar myndir, ekki til neinar í fjölskyldusafninu. Fékk ábendingu senda frá pabba mínum um þessar myndir, gamli sjóarinn finnst fátt skemmtilegra enn að skoða gamlar myndir af allskonar döllum.

Takk fyrir þetta eigið góðan dag

Kær kveðja
Ragnar Jóhannsson

Góðan daginn, áttu kaffi?
Vitavörðurinn, Jóhann Pétursson, klórar sér í hausnum nývaknaður.

Vitavarðaheimasætan nývöknuð og ótrúlega hissa yfir heimsókninni frá þessum Siglfirsku páskajólasveinum.
Best að halda sér nálægt mömmu….
Ótrúlega falleg ljósmynd af vitavarðastelpu á Hornbjargi.
Siglt til baka með vindla í kjaftinum.
Haförninn bíður við ankerið.

HAFÖRNINN og HAFÍS

Til hægri sést slóðin frá kvöldinu áður, þegar lagst var við Öldubrjótinn til að afferma olíu, en slóðin hafði frosið sama yfir nóttina.
Til vinstri sést slóðin er við fórum frá bryggju á leið til Englands. Fjörðurinn var frosinn allt út undir Selvíkurvita.

SR bryggjurnar. Sjórinn frosinn, 4-5 tommu þykkur ís.

Fastir í ís út af Melrakkasléttu.
Smá grínslagsmál á hafísnum.

Togarinn Hafliði SI 2 eltir opna slóð eftir “Hafarnar ísbrjótinn.”

SKEMMTIFERÐASKIPIÐ HAFÖRNINN

Haförninn á ánni Signu í Frakklandi – Eiginkonur skipverja: Vantar nafn?, Guðný Ósk Friðriksdóttir kona Steingríms timburmannsins, Soffía Friðgeirsdóttir kona Pálma stýrimanns, vantar nafn ? og Guðbjörg Friðriksdóttir kona Ása vélstjóra.
Hafarnarstrákar í sólbaði.
Um borð í Haferninum í Liverpool. F.v. Stefán Árnason, Birna Björnsdóttir, Halla Björnsdóttir, Hafþór Rósmundsson, Snorri Jónsson, Guðmundur Björnsson, Salmann Kristjánsson. Mennirnir fyrir aftan Höllu eru sölumenn.
Skemmtiferða farþegar. Guðný eiginkona Steingríms fyrir miðri mynd og til hægri Dórhildur eiginkona Guðmundar stýrimanns.

Alvöru sólstólar á dekkinu á skemmtiferðaskipinu Haferninum.
Fjöruferð á Jan-Majen. Siggi Drumbur með rekaviðardrumb eða stórt hvalbein í fanginu.
Skosk höll… Sound of Islay (held þetta sé rétt skrifað) við Skotland.

ALSKYNS SKEMMTANIR OG UPPÁKOMUR

Hástökkskeppni! Gunnar Tómasson, Salli og Guðmundur Björnsson háseti.
Guðmundur Björnsson háseti, lendir mjúkt á kojudýnunum.

Gaman í Snú-snú. Ægir, Gunnar, Sigurður, Salli og loftskeytamaðurinn Bergsteinn.

FJÖR Í MESSANUM…

… og sumir eru greinilega duglegri og óhræddari en aðrir við að bregða sér í alskyns hlutverk.

Sigurður Jónsson á Eyri (Siggi Drumbur) dansar villtan Afríkudans í Messanum.
Sagan segir: “Ægir Björnsson bátsmaður, bjó til pilsið úr fléttuðum landfestarbút. Og konurnar (gestirnir um borð) smurðu Sigga með sósulit. “Ég átti nokkuð erfitt, þegar þær byrjuðu að smyrja nálægt, þú veist”, sagði Siggi og hló dátt.

Bitið í súrt epli? Eiríkur Þóroddsson vélstjóri.
Óléttur Hafarnarháseti og vinkona hans… Snorri Jónsson rafvirki og Valdimar Kristjánsson dælumaður.
Heimasaumaðir leikbúningar….Guðný, eiginkona Steingríms og Sigurður Þorsteinsson skipstjóri í góðu skapi á kvöldvöku.
Steingrímur í dularfullum einkennisbúningi aftur… sem Ensk lögga… eða? Nei, þetta er víst alvöru enskur “BOBBY”
lögreglumaður sem fylgdi með tollvarðarliði sem leituðu í skipinu þegar Haförninn var staddur á Thames fljótinu í London.
Hér er verið að spila inn hryllingsmynd… eða? Salli og líklega Hafþór Rósmundsson.
Gott að eiga Long Life bjór, vindla og sígarettur á lager.
Kojufyllerí? Ónefndir og þreyttir félagar. Þeir lognuðust út af, en félagar þeirra komu flöskunum fyrir.
Steingrímur Kristinsson og Guðný Ósk Friðriksdóttir heitin, eiginkona hans giftu sig í Tívolí árið 1979?
… og áttu greinilega góða brúðkaupsnótt á sama stað.

Útskýring frá Steingrími:
Haförninn var einhversstaðar í höfn í Danmörk, en við skötuhjúin fengum frí og skruppum með lest í Tívolí í Kaupmannahöfn og gistu þar í eina nótt, en við áttu þarna brúðkaupsafmæli 6. júní – er ekki viss um ártalið (það er skráð en ekki í kolli mínum)

AÐ LOKUM…

… Siglir Haförninn úr okkar minningaheimi fyrir stundasakir. En þið getið skoðað 2.740 skemmtilegar Hafarnar ljósmyndir til viðbótar hér:
Ljósmyndasafn Siglufjarðar: Haförninn 1966 – 1970 +

Steingrímur Kristinsson fær að eiga lokaorðin sjálfur, en hann sendi mér eftirfarandi skilaboð um daginn:

Þetta var dásamlegt tímabil, konan mín fór þrisvar með mér og meira að segja einu sinni sem annar kokkur í túr.
Áhöfnin var eins og ein stór samhent fjölskylda og nýir afleysingamenn voru fljótir að smitast af þeim vinskap og umburðarlyndi, sem um borð ríkti.

Enginn var æðri öðrum á góðum stundum sem voru óteljandi. 🌺🥰”

Siglósaknaðarkveðjur til ykkar allra.
Nonni Björgvins.

Höfundur texta, samantekt og myndvinnsla:
Jón Ólafur Björgvinsson / Steingrímur Kristinsson

Ljósmyndarar:
Steingrímur Kristinsson og Margrét Steingrímsdóttir.
Alla myndir eru birtar með leyfi frá Ljósmyndsafni Siglufjarðar.

Þakklætiskveðjur fyrir yfirlestur og góðar ábendingar sendi ég:
Sólveigu Jónsdóttur.

Aðrar áhugaverðar nýlega birtar myndasyrpur og sögur með mörgum Siglfirskum minningum og myndum:

GÚSTI OG KLEINURNAR

1993 – ÞÖKK SÉ FÁUM, GETA ALLIR DRAUMAR RÆST!

DRAUGASAGA STEINGRÍMS

DRAUGAGANGURINN Á AÐALGÖTUNNI

TÍMASPEGILLINN Á MILLI ÁLFAKIRKJU OG ÁLAGABOLLA

GUÐSGJAFAR DRENGURINN OKKAR ALLRA

MARGRÉT SI 4 OG FYLLERÍ ALDARINNAR SEM LEIÐ

RÁÐHÚS- TORGIÐ OKKAR FYRR OG NÚ… 1 HLUTI. 60 MYNDA-SYRPUSAGA

RÁÐHÚS- TORGIÐ OKKAR FYRR OG Í FRAMTÍÐINNI… 2 HLUTI. MYNDA-SYRPUSAGA

SKYNDIKYNNABARN? SANNLEIKURINN SEM ALDREI VAR SAGÐUR

UM SIGLFIRSK VIÐURNEFI: ÉG HEITI EFTIR AFA MÍNUM…

FÁEIN ORÐ UM ÞORMÓÐ EYJÓLFSSON

SUNNUDAGSPISTILL: „ATHUGIÐ AÐ SIGLFIRÐINGAR ERU FLEIRI EN ÍSLENDINGAR“

SIGLFIRSKIR VILLIKETTIR OG ROTTUR HIMINSINS

SVON´ER Á SÍLD

MYNDASYRPUSAGA: SIGLUFJARÐAR – LJÓSMYNDARINN HANNES BALD. FYRRI HLUTI (50 MYNDIR)