Á haustdögum 2023 var framkvæmd íbúakönnun á vegum Háskólans á Bifröst. Í könnuninni var fólk m.a. beðið um að koma með hugmynd að slagorði fyrir Húnaþing vestra sem lýsti kjarna samfélagsins og hægt væri að nota í kynningarskyni. Nokkrar tillögur bárust og hafa nú verið valdar fimm sem íbúar eru beðnir um að kjósa um. Einnig er hægt að koma með nýja hugmynd.

Hugmyndirnar eru:

  • Húnaþing vestra – heimkynni hamingjunnar.
  • Húnaþing vestra – lifandi samfélag.
  • Húnaþing vestra – höfðingi heim að sækja.
  • Húnaþing vestra – allt til alls.
  • Húnaþing vestra – þar sem gott er að vera.

Svaraðu könnuninni hér.

Slagorðin hafa öll skírskotun til niðurstaðna rannsókna sem hafa leitt í ljós að íbúar í Húnaþingi vestra virðast ánægðari með sveitarfélagið sitt en íbúar þeirra sveitarfélaga sem við berum okkur saman við. Íbúar eru skv. könnunum einnig ánægðir með menningarlíf og afþreyingu í sveitarfélaginu. Jafnframt eru íbúar einnig skv. könnunum ánægðir með þjónustuframboð í sveitarfélaginu.

Þau sem vilja geta skráð netfang sitt og verður dregið úr innsendum svörum um gjafakort upp á 10 þús. kr. á einhvern þeirra framúrskarandi veitingastaða sem er að finna í sveitarfélaginu.

Niðurstöður íbúakönnunar frá 2020 og skýrslur um efnið til upplýsingar:

Niðurstöður íbúakönnunar 2020 – íbúar og mikilvægi búsetuskilyrða.

Margur er knár þó hann sé smár – hvað útskýrir ólíka útkomu úr íbúakönnun sambærilegra fámennra landsvæða eins og Dala- og V-Húnavatnssýslu.

Sínum augum lítur hver á silfrið – búsetuskilyrði og blæbrigði þeirra í hugum íbúa.