Oskar Brown, umsjónarmaður þáttarins, er í páskafríi og það verður því enginn þáttur þessa vikuna. Hlustendur FM Trölla þurfa þó ekki að hafa neinar áhyggjur því Oskar mætir aftur í Studio 7 að viku liðinni með uppáhalds morgunþáttinn ykkar og þá er um að gera að hlusta.  

FM Trölli er á FM 103.7 MHz á Tröllaskaga, í Skagafirði og á Hvammstanga og nágrenni.

Hægt er að hlusta á FM Trölla út um allan heim með því að smella á hlusta á trolli.is, á vefsíðunni radio.garden og á tunein.com

Minnum einnig á skip.trolli.is  sem er sérstakur lágbitastraumur fyrir minni netsambönd.

Á vefsíðu FM Trölla er hægt að hlusta á upptökur af öllum þáttum sem eru á dagskrá stöðvarinnar um þessar mundir.