Sorphirða hófst á þriðjudaginn á Siglufirði eftir óveðurs-skotið.

Það sorp sem ekki hefur verið losað á Siglufirði er sökum ófærðar í tilteknum götum eða að tunnur hafi verið á kafi í snjó.

Sorp verður tekið í Ólafsfirði í dag, fimmtudaginn 10. febrúar.

Eru íbúar vinsamlegast beðnir um að moka frá ílátum og tryggja aðgengi að þeim.